Fotbolti.net
26.04.23 - 13:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

FH mætir til leiks í kvöld með tvo nýja miðverði (Staðfest)

FH fagnar marki síðasta sumar.

FH fagnar marki síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hertz
FH hefur leik í Bestu deildinni í kvöld þegar liðið sækir Þrótt heim í Laugardalnum.
Miðvarðarstaðan hefur verið vandamál fyrir FH í vetur en Maggý Lárentsínusdóttir sem var einn besti miðvörður Lengjudeildarinnar í fyrra er ólétt og spilar ekki í sumar.

FH hefur fyrir leikinn í kvöld samið við tvo miðverði sem munu leika með liðinu í sumar.

Eins og greint var frá í gærkvöldi þá kemur Arna Eiríksdóttir á láni frá Val en hún lék afskaplega vel með Þór/KA í Bestu deildinni í fyrra.

Þá hefur FH líka samið við Heidi Giles sem er einnig miðvörður. Hún er fædd árið 1998 en hún lék í fyrra með Fjarðab/Hetti/Leikni í Lengjudeildinni.

FH er spáð neðsta sæti Bestu deildarinnar af sérfræðingum Fótbolta.net en liðið ætlar sér auðvitað að afsanna þá spá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.