Fotbolti.net
26.04.23 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liverpool vill Kalvin Phillips - Man Utd til í að borga riftunarverð

Barcelona vill fá Messi aftur.

Barcelona vill fá Messi aftur.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Miðvikudagsslúðrið er mætt. Það er í boði Powerade og er allt það helsta í erlendum miðlum tekið saman af BBC


Liverpool vill fá Kalvin Phillips (27) frá Manchester City í sumar. Enski landsliðsmaðurinn er sagður opinn fyrir því að fara. (Star)

Chelsea mun ræða við Romelu Lukaku (29) sem er á láni frá félaginu hjá Inter. Lukaku verður spurður hvort hann vilji endurlífga feril sinn hjá Chelsea undir stjórn nýs stjóra sem sagður er vera Mauricio Pochettino. (Telegraph)

Bráðabirgðastjóri Chelsea, Frank Lampard, er opinn fyrir því að ræða við Pochettino um hópinn til að hjálpa eins og mögulegt er við að koma honum í takt í nýju starfi. (Evening Standard)

Mason Mount (24) á eitt ár eftir af samningi sínum við Chelsea. Liverpool, Manchester United og Newcastle eru öll sögð hafa áhuga á miðjumanninum. (Mail Sport)

Tottenham, Chelsea og Manchester United eru öll tilbúin í að reyna lokka miðjumanninn Joao Palhinha (27) til sín frá Fulham í sumar. (Football Insider)

Chelsea hefur áhuga á því að fá Andre Onana (27) markvörð Inter í sínar raðir. Kepa Arrizabalaga (28) gæti farið í hina áttina. (Gazzetta dello Sport)

Ryan Gravenberch (20) miðjumaður Bayern Munchen hefur verið orðaður við Liverpool. Hann vill bíða og sjá hvað gerist varðandi næsta tímabil hjá Bayern. (Voetbal International)

Newcastle fylgist með Roger Ibanez (24) miðverði Roma. (Nicolo Schira)

Newcastle er að skoða að selja vængmanninn Allan Saint-Maximin (26) í sumar. (Football Insider)

Meiðsli Reece James (23) gætu komið í veg fyrir að Real Madrid láti verða af því að reyna fá bakvörðinn í sínar raðir. (AS)

Barcelona ætlar að velta öllum steinum sem mögulega hægt er að velta til að fá Lionel Messi (35) aftur til félagsins frá PSG. (90min)

Thomas Frank, stjóri Brentford, hefur sagt að ekkert sé til í því að bakvörðurinn Aaron Hickey (20) gæti farið til Manchester City í sumar. (Sky Sports)

Manchester United er nálægt því að ná samkomulagi við David de Gea (32) um nýjan samning. Möguleiki er á að De Gea þurfi að taka á sig launalækkun. (Express)

Rangers er að nálgast samkomulag við Jack Butland (30) um að markvörðurinn gangi í raðir félagsins í sumar. Butland er á láni hjá Man Utd frá Crystal Palace út tímabilið. (Scottish Sun)

Manchester United er tilbúið að greiða riftunarákvæðið (8,8 milljónir punda) í samningi Dominik Livakovic (28) við Dinamo Zagreb. Livakovic er landsliðsmarkvörður Króatíu og stóð hann sig vel á HM í Katar. (Sportske Novosti)

RB Leipzig hefur gert síðustu tilraun til að semja við Dani Olmo (24) sem verður samningslaus sumarið 2024. Ef Olmo vill ekki skrifa undir mun Leipzig reyna selja spænska miðjumanninn í sumar. (Sky Sport í Þýskalandi)

Rob McElhenney, annar af eigendum Wrexham, hefur reynt að fá Gareth Bale til að taka síðasta dansinn á ferlinum með velska liðinu á næsta tímabili. Wrexham mun spila í ensku D-deildinni á næsta tímabili. (Wales Online)
Phillips hefur ekki spilað mikið eftir komuna frá Leeds síðasta sumar.

Phillips hefur ekki spilað mikið eftir komuna frá Leeds síðasta sumar.

Canon

Mynd: EPA

Livakovic til Man Utd?

Livakovic til Man Utd?

Canon

Mynd: Getty Images

Hickey til hægri við Thomas Frank.

Hickey til hægri við Thomas Frank.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.