Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 26. júní 2020 22:28
Ívan Guðjón Baldursson
Elvar Baldvins aftur til Völsungs (Staðfest)
Mynd: Hafþór-640.is
Elvar Baldvinsson, sem á 125 leiki að baki fyrir Völsung, hefur verið lánaður aftur til Völsungs frá Þór.

Elvar getur leikið sem bakvörður eða kantmaður og var fenginn til Þórs fyrir þetta tímabil. Akureyringar geta ekki lofað honum nægum spiltíma og hafa því lánað hann aftur til Húsavíkur.

Elvar er fæddur 1997 og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Völsungs undanfarin ár.

Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Völsung sem leikur í 2. deild. Húsvíkingar töpuðu gegn Njarðvík í fyrstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner