Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 26. júní 2020 22:36
Ívan Guðjón Baldursson
Magni fær Freyþór Hrafn (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Magni er búinn að krækja í Freyþór Hrafn Harðarson miðvörð Völsungs.

Freyþór er fæddur 1997 og hefur leikið 78 leiki fyrir Völsung á síðustu fimm árum. Hann hefur verið lykilmaður síðustu tvö ár og mun núna hjálpa Magna í Lengjudeildinni.

Magni byrjaði sumarið á 2-0 tapi gegn ÍBV á meðan Völsungur tapaði gegn Njarðvík í fyrstu umferð 2. deildar. Freyþór spilaði þann leik.

Það verður áhugavert að fylgjast með Freyþóri reyna fyrir sér í næstefstu deild. Hingað til hefur hann aðeins leikið með Völsungi í 2. og 3. deild.
Athugasemdir
banner
banner