Kvaddi með þrennu og þakkar allri Þórsfjölskyldunni fyrir - „Tilfinningaþrungið fyrir mig"
Auglýsing

Fagnað í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnað í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var tilfinningaþrungið fyrir mig, þegar leikurinn var búinn grét ég næstum því. Eftir allan tímann hér að enda þetta á þennan hátt er mér mjög mikilvægt," sagði Alvaro Montejo eftir sinn síðasta leik fyrir Þór.
Alvaro skoraði þrennu í 0-3 útisigri gegn Fjölni í dag. Hann er á leiðinni í stutt frí á Spáni en svo hefur hann undirbúning með spænska liðinu sínu sem fór upp um deild í vetur. Alvaro kom fyrst til Íslands árið 2014 og lék þá með Hugin. Fyrir tímabilið 2018 gekk hann svo í raðir Þórs frá ÍBV.
Sjá einnig:
Alvaro endaði markahæstur og kom Adarve upp um deild

Leikmenn 2. flokks hjá félaginu eru í leikjatörn á höfuðborgarsvæðinu og studdu þeir gríðarlega vel við bakið á leikmönnum liðsins. Hvernig var fyrir Alvaro að spila þennan leik?
„Það var æðislegt. Ég verð að þakka öllum fyrir, allri Þórsfjölskyldunni því Þór er fjölskylda. Mér leið mjög vel hjá félaginu og ég hef verið mjög hamingjusamur á Akureyri."
Alvaro skoraði einnig gegn Grindavík í miðri viku í sínum síðasta heimaleik. „Mér finnst ég skulda félaginu helling, það gerði mig mjög hamingjusaman. Það besta sem ég get gert til að endurgjalda það er að skora mörk og mér tókst að gera það í þessum síðustu tveimur leikjum. Ég get því farið til Spánar mjög hamingjusamur."
„Þetta var minn síðasti leikur fyrir Þór og líklega síðasti leikurinn minn á Íslandi. Ég hef notið mín hér en mér finnst vera kominn tími á að fara heim til Spánar og spila þar," sagði Alvaro.
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan