Fulham er búið að leggja fram tilboð í Andreas Pereira, miðjumann Manchester United sem á eitt ár eftir af samningnum við félagið.
Tilboðið frá Fulham hljóðar upp á um það bil 10 milljónir punda og er félagið með fimm ára samningstilboð tilbúið fyrir leikmanninnn.
Rauðu djöflarnir eru tilbúnir til að samþykkja tilboðið á meðan Pereira er óviss og mun taka ákvörðun í vikunni.
Pereira er 26 ára gamall og hefur spilað 75 leiki hjá Man Utd. Hann hefur farið til liða á borð við Lazio og Valencia á lánssamningum og varði síðustu leiktíð hjá Flamengo.
Athugasemdir