Pétur Pétursson: Mér fannst við bara ekkert gera þetta eins og við áttum að gera þetta

Pétur Pétursson, þjálfari Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pétur Pétursson, þjálfari Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst við ekki nóg og samstíga í fyrri hálfleik og mér fannst þetta frekar ódýr mörk að fá á sig, sérstaklega eftir tvær mínútur“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir 2-1 tap gegn Breiðablik á Kópavogsvelli í kvöld.
„Erfitt að fá mark á sig þarna rétt fyrir hálfleik, 2-0. Mér fannst við koma vel inn í þetta í seinni hálfleik, setjum mark snemma og mér fannst við spila ágætlega en það vantaði kannski svona skerpu fram á við“ hélt hann svo áfram en með tapinu í kvöld misstu Valsarar toppsætið til Blika.
Eftir erfiðan fyrri hálfleik komu Valsarar þó sterkari út í þann seinni og aðspurður hvað þau hefðu rætt í hálfleik segir hann:
„Mér fannst við bara ekkert gera þetta eins og við áttum að gera þetta í fyrri hálfleik. Við fórum bara aðeins yfir það hvernig við vildum gera þetta og mér fannst við fá þessar opnanir sem við vildum og boltinn gekk vel hjá okkur en það vantaði svona síðustu sendinguna til að skapa færi.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.





