Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. júlí 2022 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Baumann snýr aftur í Þrótt (Staðfest)
Í leik í fyrra
Í leik í fyrra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lorena Yvonne Baumann er mætt aftur í Þrótt og mun klára tímabilið með liðinu. Lorena er frá Sviss og lék hún með St. Gallen síðustu mánuði.

Lorena lék með Þrótti á síðasta tímabili, lék fimmtán deildarleiki og fjóra leiki í Mjólkurbikarnum þar sem Þróttur komst í úrslit.

Hún er 25 ára gömul og spilar hægra megin á vellinum, getur bæði spilað á kantinum sem og í bakverði.

Hún á að baki tvo A-landsleiki og ellefu leiki fyrri yngri landslið Sviss.

Þróttur er í 5. sæti Bestu deildarinnar, með sextán stig eftir tíu leiki. Næsti leikur liðsins er eftir rúma viku gegn Aftureldingu.

Sjá einnig:
Jelena frá í nokkrar vikur í viðbót - Olla að snúa til baka
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner