Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 26. júlí 2022 22:49
Brynjar Ingi Erluson
Fram lánar Anton Hrafn til ÍR (Staðfest)
Mynd: Fram
Anton Hrafn Hallgrímsson mun spila með ÍR á láni frá Fram út þessa leiktíð.

Anton er fæddur árið 2002 og kemur úr unglingastarfi Fram en gekk til liðs við Úlfana á láni fyrir tímabilið.

Hann lék tólf leiki í deild og bikar með liðinu í sumar og skoraði tvö mörk en var kallaður aftur til félagsins í dag og lánaður um leið til ÍR, sem leikur í 2. deildinni.

Anton er samningsbundinn Fram út næsta ár en hann á einn leik að baki fyrir félagið er hann lék í 8-0 sigri liðsins á Herði í Mjólkurbikarnum á síðasta ári.

ÍR er í sjötta sæti 2. deildar karla með 16 stig.
Athugasemdir
banner
banner