Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. júlí 2022 11:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Krissi Rós aftur í Magna (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magni hefur fengið liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins í 2. deildinni því Kristinn Þór Rósbergsson hefur fengið félagaskipti til liðsins frá Dalvík/Reyni.

Krissi, eins og Kristinn er oftast kallaður, þekkir vel til hjá Magna því hann lék með liðinu tímabilin 2016-2020.

Hann er þrítugur sóknarmaður sem skoraði sex mörk fyrir Dalvík/Reyni í 3. deildinni í fyrra. Hann hefur ekkert spilað í sumar.

Krissi hefur skorað 44 mörk í deild og bikar með Magna. Hann er uppalinn hjá Þór og hefur einnig leikið með KF og Dalvík/Reyni í meistaraflokki.

Magni er í botnsæti 2. deildar þegar þrettán umferðir eru búnar af deildinni. Næsti leikur liðsins er gegn Hetti/Hugin á útivelli á morgun.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner