Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. ágúst 2019 09:21
Magnús Már Einarsson
Mihajlovic stýrði leik nýkominn úr lyfjameðferð
Sinisa Mihajlovic á hliðarlínunni í gær.
Sinisa Mihajlovic á hliðarlínunni í gær.
Mynd: Getty Images
Sinisa Mihajlovic, þjálfari Bologna, var mættur á hliðarlínuna í gær þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Hellas Verona í fyrstu umferð Serie A.

Einungis sex vikur eru síðan Mihajlovic greindist með hvítblæði. Serbinn fór í lyfjameðferð og var í 41 dag á sjúkrahúsi.

Hann hafði lofað leikmönnum sínum að mæta í fyrsta leiktímabilsins og stóð við stóru orðin í grær.

Mihajlovic hefur fylgst með öllu sem er í gangi hjá Bologna undanfarnar vikur en hann hefur fengið beina útsendingu af æfingum liðsins.

Mihajlovic var öflugur varnarmaður á sínum tíma sem leikmaður en hann spilaði meðal annars með Roma, Sampdoria, Lazio og Inter.
Athugasemdir
banner
banner