Björn Berg hafði gaman af þjálfarahlutverkinu: Fáum sennilega ekki tækifæri á þessu aftur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er hundfúll," sagði Björn Berg Bryde sem stýrði Stjörnunni í fjarveru Jökuls Elísabetarsonar eftir tap gegn KA í dag.
„Mér fannst við vera með öll tök á leiknum. Orðnir einum fleiri og erum óþolinmóðir og gerum mistök sem við erum ekki vanir. En það er bara áfram gakk, enginn heimsendir þó við töpum einum leik. Við vitum það best sjálfir að við getum gert betur," sagði Björn.
Björn Berg þótti þjálfarahlutverkið skemmtilegt en hræddur um að fá ekki fleiri tækifæri eftir tapið.
„Það var gríðarlega skemmtilegt. Þetta sýnir hvað þetta er þéttur hópur, það er oft talað um að maður kemur í manns stað en það á kannski ekki alltaf við um að leikmaður verður þjálfari," sagði Björn.
„Við vissum að þessi staða gæti komið upp, því miður fyrir okkur alla að þetta hafi ekki gengið þá fáum við sennilega ekki tækifæri á þessu aftur."




