
Margrét Lára Viðarsdóttir, markahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna 33 ára gömul. Margrét Lára skoraði 79 mörk í 124 landsleikjum á ferli sínum með íslenska landsliðinu.
Á ferli sínum varð Margrét Lára fjórum sinnum Íslandsmeistari með Val og einu sinni bikarmeistari. Hún vann gullskóinn í efstu deild fjórum sinnum og hlaut nafnbótina Íþróttamaður ársins árið 2007.
Margrét Lára ólst upp hjá ÍBV en hún gekk í raðir Vals fyrir sumarið 2005. Margrét spilaði á ferlinum bæði með Kristianstad og Linköpings í Svíþjóð sem og með Duisburg og Turbine Potsdam í Þýskalandi.
Undanfarin þrjú ár hefur Margrét Lára spilað með Val en hún skoraði fimmtán mörk og var fyrirliði þegar liðið varð Íslandsmeistari síðastliðið sumar.
„Ákvörðunin að leggja skóna á hilluna var langt frá því að vera mér auðveld. Ferillinn hefur verið draumi líkastur og ef einhver hefði sagt mér að ég hefði átt eftir að vinna alla þessa titla með liðum mínum og sem einstaklingur þá hefði ég aldrei trúað því. Titlarnir eru eitt en allt það frábæra fólk sem ég hef kynnst í fótboltanum er það sem stendur upp úr. Ég er óendanlega þakklát fyrir allt, en kveð með trega og mjög sátt," sagði Margrét Lára á Facebook síðu Vals.
Tölfræði Margrétar Láru
Deildar og bikarleikir á Íslandi - 180 leikir og 255 mörk
Landsleikir - 124 leikir og 79 mörk
Athugasemdir