Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 26. nóvember 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Markvörðurinn skoraði yfir allan völlinn
Mexíkóski markvörðurinn Antonio Rodriguez tryggði Chivas 3-1 sigur á Veracruz í mexíkósku úrvalsdeildinni á laugardag.

Chivas var að leiða leikinn 2-1 þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Gestirnir fengu hornspyrnu og ákvað markvörður þeirra að mæta inn í teiginn. Það var hins vegar ekkert úr sókn gestanna og handsamaði Rodriguez knöttinn og sparkaði honum langt fram völlinn.

Sparkið var frábært og langt sem varð til þess að boltinn skoppaði alla leið inn í markið en hægt er að sjá það hér fyrir neðan.


Athugasemdir