Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fös 26. nóvember 2021 22:17
Victor Pálsson
Mun fá góðar móttökur á Emirates á morgun
Mynd: EPA
Joe Willock mun fá góð viðbrögð á Emirates á morgun er Arsenal mætir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal ákvað að selja Willock til Newcastle fyrir tímabilið en hann stóð sig vel í láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.

Arteta útilokar ekki að Willock snúi aftur einn daginn og segir hann vera í góðri minningu á Emirates fyrir þessa viðureign.

„Ég tel að það væri mjög gaman að fá hann aftur, við elskum allir Joe," sagði Arteta.

„Augljóslega var það erfið ákvörðun að hleypa honum burt en ég tel að hann hafi sýnt það að hann þurfi mínútur og hann fær þær þarna og nýja áskorun."

„Ég hef rætt við hann - ekki í þessari viku en hann veit hvernig móttökur hann mun fá."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner