Fotbolti.net
27.01.22 - 21:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Liverpool neitar tilboði Leeds í Minamino

Liverpool neitar tilboði Leeds í Minamino
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur neitað tilboði Leeds United í japanska leikmanninn Takumi Minamino. Þetta kemur fram á Sky Sports.
Minamino hefur leikið 18 leiki fyrir Liverpool á þessari leiktíð en aðeins sex sinnum verið í byrjunarliðinu, fjórum sinnum í deildabikarnum.

Það er einnig áhugi frá franska liðinu Monaco. Minamino er aftarlega í goggunarröðinni hjá Liverpool en félagið vill ekki selja hann nema það komi mjög gott tilboð í hann. Liðið er að keppa á mörgum vígstöðum og þarf mikla breidd.

Þá hefur Atalanta áhuga á Divock Origi en ítalska félagið leitar að framherja þar sem Duvan Zapata er sterklega orðaður við Newcastle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.