27.02.19 - 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gylfi: Sterk þrjú stig á erfiðum útivelli

Gylfi fagnar í leiknum í gær.

Mynd: Getty Images

Gylfi fagnar í leiknum í gær.

Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði í gær tvö mörk þegar Everton vann Cardiff. Gylfi varð, þegar hann skoraði fyrra markið, markahæsti Íslendingurinn í sögu Úrvalsdeildarinnar.
Gylfi er kominn með ellefu mörk í deildinni og var eftir leikinn spurður út í leikinn og framhaldið.
„Þetta var góður sigur, þetta var erfitt kvöld, Cardiff er alltaf verðugur andstæðingur og erfiðir heim að sækja. Það var mikilvægt fyrir okkur að skora fyrsta markið. Við gerðum það og mér fannst við stjórna leiknum í kjölfarið," sagði Gylfi.
„Leikurinn var frekar jafn í til að byrja með, við vorum líklega meira með boltann en sköpuðum lítið. Eftir markið stjórnuðum við leiknum og héldum boltanum vel. Við vitum að þeir eru sterkir í föstum leikatriðum og við náðum að verjast þeim vel og ná í stigin þrjú."
„Það er alltaf gott að fá þrjú stig og skora þrjú mörk á útivelli. Við eigum erfiðan leik á sunnudaginn, leik sem maður horfir í frá upphafi tímabilsins. Vonandi náum við jákvæðum úrslitum þar og getum nýtt þann mótbyr fyrir framhaldið."
Everton mætir Liverpool á sunnudaginn í nágrannaslag.
Sjá einnig:
Gylfi besti maður vallarins