Fotbolti.net
27.02.21 - 14:22
Victor Pálsson

England: Varnarmenn Man City sáu um West Ham

Ruben Dias.

Ruben Dias.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Manchester City 2 - 1 West Ham</b>
1-0 Ruben Dias('30)
1-1 Michail Antonio('43)
2-1 John Stones('68)
Það voru tveir varnarmenn sem reyndust hetjur Manchester City í dag er liðið spilaði við West Ham á heimavelli sínum, Etihad.

Man City hefur verið óstöðvandi á síðustu vikum en mætti West Ham sem er til alls líklegt. Liðin voru í efsta og fjórða sæti deildarinnar.

Fyrsta mark leiksins skoraði Ruben Dias fyrir heimaliðið í dag en hann skallaði knöttinn í netið á 30. mínútu eftir sendingu Kevin de Bruyne.

Á markamínútunni, 43, þá tókst West Ham hins vegar að jafna og það gerði sóknarmaðurinn Michail Antonio.

Antonio hafði fengið fínt færi skömmu áður og skaut í stöng en nýtti seinna færi sitt til að jafna leikinn fyrir David Moyes og félaga.

Það var svo á 68. mínútu seinni hálfleiks sem sigurmarkið kom og það gerði hinn miðvörður Man City, John Stones eftir sendingu frá Riyad Mahrez.

Mark Stones tryggði bláliðum sigur og er liðið nú með 13 stiga forskot á toppi deildarinnar með níu fingur á titlinum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.