Fotbolti.net
27.02.26 - 21:49
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjubikarinn: Keflavík vann í seinni hálfleik

Lengjubikarinn: Keflavík vann í seinni hálfleik
Canon

Mynd: Keflavík

Keflavík 3 - 1 Ægir
1-0 Halid Alghoul ('60)
2-0 Dagur Ingi Valsson ('77)
3-0 Eiður Orri Ragnarsson ('78)
3-1 Atli Rafn Guðbjartsson ('81)
Keflavík og Ægir áttust við í efstu deild Lengjubikars karla í kvöld og var staðan markalaus í leikhlé. Keflavík eru nýliðar í Bestu deildinni á meðan Ægir eru nýliðar í Lengjudeildinni.

Leikurinn fór fram í Nettóhöllinni og náðu heimamenn forystunni á 60. mínútu þegar Halid Alghoul skoraði.

Dagur Ingi Valsson og Eiður Orri Ragnarsson innsigluðu svo sigurinn þegar þeir skoruðu með stuttu millibili, áður en Atli Rafn Guðbjartsson minnkaði muninn svo lokatölur urðu 3-1.

Keflavík er með sjö stig eftir fjórar umferðir í Lengjubikarnum. Ægir situr eftir án stiga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.