Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 27. mars 2020 14:30
Elvar Geir Magnússon
Fór úr sóttkví í partí
Nolberto Solano.
Nolberto Solano.
Mynd: Getty Images
Nolberto Solano hefur verið yfirheyrður af lögreglunni en hann fór úr sóttkví til að skella sér í partí í Líma, höfuðborg Perú.

Þessi fyrrum leikmaður Aston Villa og Newcastle ákvað að fara á djammið.

Nágrannar kvörtuðu yfir hávaða úr gleðskapnum og þegar lögreglan mætti á svæðið fann hún Solano í húsinu.

Solano brást illa við þegar fjölmiðlar spurðu hann út í atvikið.

Samkomubann er í gildi í Perú vegna heimsfaraldursins.



Athugasemdir
banner
banner
banner