„Það er svo auðvelt að þjálfa Neymar því maður þarf ekki að gera mikið," sagði Mauricio Pochettino, þjálfari Paris Saint-Germain um brasilíska sóknarmanninn Neymar.
Neymar er óumdeilanlega einn besti knattspyrnumaður heims og hefur hann gert mikið fyrir franska félagið á síðustu árum eða frá því hann var keyptur frá Barcelona fyrir metfé.
Pochettino tók við þjálfun PSG fyrr á þessu ári en hann segir það afar þægilegt að þjálfa leikmanninn.
„Hann hefur verið opinn fyrir því að leggja mikið á sig frá fyrsta degi. Hann er hógvær, hlustar og sættir sig við allar leiðbeiningar sem honum eru gefnar," sagði Pochettino.
„Brasilískir leikmenn eru með eitthvað afar sérstakt í blóðinu því þeir elska að spila fótbolta af því það er eins og einhvers konar dans. Þeir spila eins og þeir séu að dansa. Ronaldinho var liðsfélagi minn hjá PSG á sínum tíma og núna er ég með Neymar."
„Þeim þarf að líða vel og vera ánægðir til að spila sem allra best," sagði hann í lokin.
Athugasemdir