Mikið ber á milli Man Utd og Roma í viðræðum um Zirkzee - Chelsea hyggst styrkja miðsvæðið og er orðað við Mainoo og Wharton
banner
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
föstudagur 12. september
Besta-deild kvenna
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
Celje - Shelbourne - 20:00
Mainz - Samsunspor - 20:00
Lausanne - Fiorentina - 20:00
Shakhtar D - Rijeka - 20:00
Olomouc - Lech - 20:00
Slovan - Hacken - 20:00
Vallecano - Drita FC - 20:00
Crystal Palace - KuPS - 20:00
Strasbourg - Breiðablik - 20:00
Legia - Lincoln - 20:00
Zrinjski - Rapid - 20:00
Sparta Prag - Aberdeen - 20:00
AEK Larnaca - Shkendija - 20:00
AEK - Universitatea Craiova - 20:00
Omonia - Rakow - 20:00
AZ - Jagiellonia - 20:00
Dynamo K. - Noah - 20:00
Shamrock - Hamrun Spartans - 20:00
Vináttuleikur
Spain U-19 3 - 0 Australia U-20
Túnis 2 - 1 Botswana
Costa Rica U-20 - Canada U-20 - 21:00
Bikarkeppni
Burgos 1 - 1 Getafe
Ourense CF 0 - 0 Athletic
Murcia - Betis - 20:00
fim 27.apr 2023 19:00 Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Magazine image

Spá þjálfara í 2. deild: 10. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. KV er spáð tíunda sæti deildarinnar og rétt sleppur við fall ef spáin rætist.

KV féll úr Lengjudeildinni í fyrra.
KV féll úr Lengjudeildinni í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjörvar Ólafsson tók við liði KV í vetur.
Hjörvar Ólafsson tók við liði KV í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Úr leik hjá KV á undirbúningstímabilinu.
Úr leik hjá KV á undirbúningstímabilinu.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Ingólfur Sigurðsson er lykilmaður.
Ingólfur Sigurðsson er lykilmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Askur Jóhannsson.
Askur Jóhannsson.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Í leik gegn Þrótti í Mjólkurbikarnum.
Í leik gegn Þrótti í Mjólkurbikarnum.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Úr stúkunni á Auto Park.
Úr stúkunni á Auto Park.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10. KV, 42 stig
11. KF, 32 stig
12. KFG, 19 stig

Lokastaða í fyrra: KV hefur verið mikilli uppleið síðustu árin, eða allavega fyrir tímabilið í fyrra. KV tókst að komast alla leið upp í Lengjudeildina en það var kannski aðeins of stórt verkefni á endanum. Liðið gaf þó allt sitt í verkefnið og endaði með 18 stig í ellefta sæti deildarinnar.

Þjálfarinn: Hjörvar Ólafsson hefur verið ráðinn sem þjálfari KV og stýrir liðinu í sumar. Sigurvin Ólafsson hætti með KV snemma á síðasta tímabili og fór yfir í FH, en undir hans stjórn var KV búið að gera frábæra hluti. Sigurður Víðisson tók við liðinu þá en hann verður ekki áfram. Hjörvar er mættur inn en hann hefur verið að þjálfa í yngri flokkum KR og hefur áður þjálfað KV. Hann þekkir því félagið mjög vel.

Álit Ástríðunnar
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttarstjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.

Um KV segja þeir: Jahá. Árið 2023 hafa 34 leikmenn gert félagsskipti í KV. Þeir átta leikmenn sem spiluðu flestar mínútur fyrir KV í fyrra eru farnir í önnur lið. Gunnar Helgi er sá eini sem spilaði meira en 50% af mínútum í fyrra sem er enn skráður í KV. Liðið mætir með glænýtt lið til leiks og eru algjört spurningamerki. Þrátt fyrir það er þessi spá galin því leikmannahópurinn er alltof góður til að lenda í 10. sæti.

Styrkleikar: Þetta félag er nú orðið öllu vant. Þeir hafa sveiflast á milli deilda eins og enginn væri morgundagurinn. Það að þurfa nú að byggja upp nýtt lið nánast frá grunni hefur engin áhrif á þá. Þeir hafa reynslubolta í liðinu sem hafa verið þarna í nokkur ár. En umfram allt er þessi leikmannahópur stútfullur af gæðum.

Veikleikar: Þeir hafa fengið marga leikmenn frá KR og nú er spurning hvort eigi að auka samstarfið á milli KR og KV. Það er alltaf ákveðið ferli og hefur sagan sýnt að það gengur ekki alltaf snurðulaust fyrir sig. Ef það er planið gæti þetta tímabil verið ákveðið uppbyggingartímabil þar sem ungir leikmenn fá reynslu í meistaraflokki.

Lykilmenn: Askur Jóhannsson, Ingólfur Sigurðsson og Sölvi Björnsson (ef hann verður með á fullu).

Gaman að fylgjast með: Sigurpáll Sören Viggósson er efnilegur markvörður sem hefur verið í hópum hjá yngri landsliðum Íslands.

Komnir
Andi Morina frá Þrótti V. (á láni)
Aron Bjarni Arnórsson frá KR (á láni)
Aron Skúli Brynjarsson frá Haukum
Ásgrímur Daníel Víðisson frá KR (á láni)
Baldur Jónsson frá Danmörku
Björn Henry Kristjánsson frá KR
Dagur Bjarkason frá KR (á láni)
Eiður Snorri Bjarnason frá KR
Freyr Þrastarson frá KR
Guðmundur Ísak Bóasson frá Þrótti R.
Gunnar Hrafn Pálsson frá Gróttu (á láni)
Gunnar Magnús Gunnarsson frá KR (á láni)
Hannes Ísberg Gunnarsson frá Gróttu (á láni)
Jóhannes Sakda Ragnarsson frá Kríu
Jón Ívar Þórólfsson frá KR (á láni)
Kári Eydal frá Gróttu (á láni)
Kormákur Pétur Ágústsson frá KR (á láni)
Marinó Tómasson frá KR
Orri Fannar Þórisson frá Kríu
Óðinn Bjarkason frá KR (á láni)
Patrik Thor Pétursson frá KR (á láni)
Róbert Laufdal Arnarsson frá KR
Róbert Logi Jónsson frá KR
Rökkvi Rafn Agnesarson frá Stjörnunni
Sergio Herrero Medina frá KR
Snorri Bjarkason frá KR
Sólvin Tómasson frá KR
Sölvi Björnsson frá Gróttu
Vilhelm Bjarki Viðarsson frá Kríu

Farnir
Bele Alomerovic í Val (var á láni)
Grímur Ingi Jakobsson í Gróttu
Haraldur Ingi Ólafsson í Kríu
Hrafn Tómasson í KR (var á láni)
Hreinn Ingi Örnólfsson í Þrótt V.
Magnús Snær Dagbjartsson í Þrótt V.
Njörður Þórhallsson í Þrótt R.
Oddur Ingi Bjarnason í KR (var á láni)
Ómar Castaldo Einarsson í Þór
Patryk Hryniewicki í Leikni R. (var á láni)
Rúrik Gunnarsson í KR (var á láni)
Samúel Már Kristinsson í Fjölni
Stefán Orri Hákonarson í KR
Styrmir Máni Kárason í Hauka
Valdimar Daði Sævarsson í Þór
Þorsteinn Örn Bernharðsson í Njarðvík

Þjálfarinn segir - Hjörvar Ólafsson
„Við erum mjög spenntir fyrir því að deildin byrji eftir langan vetur. Það hefur tekist að byggja upp öflugan hóp með ungum og spennandi leikmönnum í bland við reynslumeiri leikmenn sem hafa verið í félaginu í langan tíma."

„Þegar við fórum af stað á tímabilinu vorum við með töluvert marga leikmenn sem voru að spila sína fyrstu leiki í meistaraflokksfótbolta og það hefur verið stígandi í leik liðsins á undirbúningstímabilinu að mínu mati."

„Eins og áður þá rennum við svolítið blint í sjóinn inn í þessa deild. Það er svolítið erfitt að átta sig á því hvar við stöndum þar sem við höfum ekki mátað okkur við liðin sem verða í deildinni."

„Okkar markmið er að vera í efri helmingi deildarinnar en félagið á að okkar áliti best heima í þessari deild sé tekið mið af leikmannahópnum og umgjörð í kringum liðið. Svo bara tökum við stöðuna þegar inn í mótið er komið."

„Við höfum bætt við okkur sterkum leikmönnum á láni síðustu vikurnar og þeir leikmenn hafa smollið eins og flís við rass inn í hópinn. Það er góð stemning í félaginu líkt og ávallt hefur verið og Vesturbærinn hlakkar til að byrja veisluna. Við hlökkum mikið til þess að taka á móti okkar fólki á Auto Park og svo sækja liðin utan af landi heim sem og andstæðinga okkar af höfuðborgarsvæðinu."

Fyrstu þrír leikir KV:
6. maí, KFG - KV (Samsungvöllurinn)
13. maí, KV - Haukar (Auto Park)
20. maí, KFA - KV (Fjarðabyggðarhöllin)
Athugasemdir
banner
banner