Fotbolti.net
27.04.23 - 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Elín Metta skipti ekki - „Var að keyra út úr Reykjavík í suðurátt"

Elín Metta Jensen.

Elín Metta Jensen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Eins og sagt var frá á dögunum þá mætti Elín Metta Jensen verið að æfa með Stjörnunni upp á síðkastið.
Elín Metta, sem er 28 ára gömul, lagði skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð eftir að hafa spilað með Val allan sinn feril. Hún ákvað að hætta til að einbeita sér að öðrum hugarefnum en Elín hefur verið í krefjandi læknisnámi meðfram fótboltanum síðustu árin.

Elín Metta er einn besti sóknarmaður sem hefur leikið í efstu deild á Íslandi, en hún lék 261 leiki fyrir Val og skoraði 193 mörk. Hún hefur einnig 62 landsleiki og skoraði 16 mörk.

Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var spurður út í Elínu eftir 0-1 tap gegn Þór/KA í fyrstu umferð Bestu deildarinnar í gærkvöldi.

„Elín Metta var að keyra út úr Reykjavík í suðurátt og stoppaði á fyrstu ljósunum sem hún lenti á. Það var hérna í Garðabæ, en hún tók vinstri beygju og beint á Samsungvöllinn. Hún kíkti á æfingu en bara aðeins til að skemmta sér. Hún var bara að athuga hvernig er að sparka í boltann," sagði Kristján.

Glugginn lokaði í gær og Elín Metta fékk ekki félagaskipti. Hún er því ekki að fara að spila í Bestu deildinni fyrri hluta sumars að minnsta kosti.

Kristján Guðmunds: Það vantaði svolítið að brjóta þetta aðeins upp

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.