Fotbolti.net
27.04.23 - 09:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Vonsvikinn með Ronaldo og segir framkomu hans hafa komið á óvart

Cristiano Ronaldo.

Cristiano Ronaldo.

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska ofurstjarnan Cristiano Ronaldo er að klára sitt fyrsta tímabil í Sádí-Arabíu.

Það eru ekki allir ánægðir með framkomu hans frá því hann kom þangað en þar á meðal er Jean-David Beauguel, stjörnuleikmaður Al-Wehda.
Al Wehda spilaði við Al Nassr, lið Ronaldo, fyrr í þessari og fór með 0-1 sigur af hólmi. Um var að ræða bikarleik en þetta voru mjög óvænt úrslit.

Eftir leik fór Beauguel upp að Ronaldo og spurði hvort hann gæti fengið treyjuna hans. Ronaldo var hins vegar mjög pirraður eftir leikinn.

„Ég var svolítið vonsvikinn. Ég sagði við hann að ég væri mikill aðdáandi og spurði hvort við gætum skipt á treyjum. Hann tók í höndina mína en horfði ekki á mig," sagði Beauguel við L’Equipe.

„Ég skil að hann er mikill keppnismaður en framkoma hans kom mér á óvart."

Ronaldo hefur ellefu mörk í 14 leikjum frá því hann fór til Sádí-Arabíu en liðinu hans hefur ekki gengið neitt sérlega vel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.