Hinn 19 ára gamli Alphonso Davies hefur látið ljós sitt skína með FC Bayern og er vinstri bakvarðarstaðan orðin hans.
Davies býr yfir ógurlegum hraða og getur einnig leikið ofarlega á vinstri kantinum. Kingsley Coman segir Davies vera „sneggsta leikmann Bayern" og er hann orðinn þekktur fyrir magnaða spretti sína til baka.
Davies á met þýsku deildarinnar yfir sneggsta sprett sem hefur verið mældur síðan mælingar hófust 2011. Þá hljóp hann á 35,6km hraða. Kylian Mbappe er talinn sneggsti knattspyrnumaður heims og hefur verið mældur á 36km hraða.
Davies átti einn slíkan sprett í toppslagnum gegn Borussia Dortmund í gærkvöldi, sem Bayern vann 0-1 á útivelli.
Þann sprett og nokkra aðra er hægt að sjá á myndskeiðum hér fyrir neðan.
Davies hefur skorað 5 mörk í 17 A-landsleikjum fyrir Kanada.
WOW. Watch Alphonso Davies speed and recovery run here to catch Son. 20 yards. 💨 Been excellent at LB for Bayern the last month and a half. pic.twitter.com/R37KoI38lb
— Stu Holden (@stuholden) December 11, 2019
Alphonso Davies recovery vs Halaand from r/soccer
Davies dribbling past 4 Dortmund players from r/soccer
Athugasemdir