Fotbolti.net
27.05.24 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Casemiro fór í frí í stað þess að fagna með liðinu

Casemiro fór í frí í stað þess að fagna með liðinu
Canon

Mynd: EPA

Það hefur vakið athygli að Casemiro, miðjumaður Manchester United, hafi ekki fagnað með liðinu eftir sigur United gegn Man City í enska bikarnum um helgina.

Casemiro var ekki í leikmannahópi liðsins í leiknum. Leikmenn liðsins fögnuðu sigrinum frameftir en eiginkona Casemiro deildi mynd af fjölskyldunni á leið í frí strax eftir leikinn.

Miðjumaðurinn hefur fengið mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína á þessu tímabili en hann þurfti að leysa stöðu miðvarðar undir lok tímabils vegna meiðslavandræða.

Hann hefur verið sterklega orðaður frá félaginu í sumar spurning hvort þetta ýti frekar undir þær sögusagnir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.