Man Utd hefur rætt við Mbeumo - Newcastle vill Delap og Pedro - Chelsea hefur rætt um Ekitike
   þri 27. maí 2025 13:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Duttu í lukkupottinn - „Frábært fyrir Fram og íslenskan fótbolta"
Verið mjög öflugur á tímabilinu.
Verið mjög öflugur á tímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hefur skorað eitt mark og lagt upp fjögur í upphafi Íslandsmótsins.
Hefur skorað eitt mark og lagt upp fjögur í upphafi Íslandsmótsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varð Evrópumeistari með U21 landsliði Svía 2015.
Varð Evrópumeistari með U21 landsliði Svía 2015.
Mynd: EPA
Sést að hann hefur spilað á háu stigi á sínum ferli.
Sést að hann hefur spilað á háu stigi á sínum ferli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænski miðjumaðurinn Simon Tibbling hefur verið mjög öflugur í liði Fram á tímabilinu. Hann gekk í raðir félagsins í vetur en hann er með ansi öfluga ferilskrá.

Tibbling varð Evróumeistari með U21 landsliði Svía 2015 og hefur orði bikarmeistari í bæði Hollandi og Danmörku.

Hann verður 31 árs í september og hefur á sínum ferli verið hjá Djurgården, Grongingen, Bröndby, Emmen, Randers og Sarpsbog þar sem hann fór í aðgerð á baki fyrir um ári síðan. Hann lék árið 2019 einn A-landsleik.

Hann sýndi mikil gæði í sigri Fram á KR um helgina og Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram, um Tibbling sem hefur skorað eitt mark og lagt upp fjögur í upphafi móts.

„Þetta er leikmaður með gríðarlega flotta ferilskrá, þannig það er ekki að ástæðulausu að hann sé að spila svona vel og sé svona góður. Þegar hann kom til okkar var hann búinn að vera frískur í einhvern tíma en hafði ekki fengið séns neins staðar til að sýna sig, þannig við tókum hann með í æfingaferðina. Við sáum strax hvaða gæði hann hafði."

„Hann fullvissaði okkur um að hann væri heill heilsu og hann hefur ekki misst úr æfingu síðan hann kom, ekkert að bakinu á honum. Hann fór í aðgerð fyrir rúmu ári síðan en allt í 100% standi núna. Hann er búinn að koma sér í form með því að spila með okkur, fórum varlega með hann í byrjun, jukum alltaf við mínúturnar. Núna er hann heill heilsu og í fínu standi. Hann er búinn að vera frábær fyrir okkur."


Er hann betri heldur en þú bjóst við honum?

„Ég vissi svo sem ekki við hverju átti að búast, ég var auðvitað búinn að sjá fullt af klippum með honum og skoða hann á vídeóum. Við sáum hvaða hæfileika hann hafði. Já, ég verð að segja það, hann hefur verið betri en ég bjóst við."

„Karakterinn hans og gleðin hans í leiknum - að vera með leikmann á Íslandi af þessu kalíberi, með þennan feril - maður hefur oft séð menn vera á leiðinni niður á við og ekki nennt að leggja sig mikið fram, verið einhverjir spaðar og haldið að þeir séu betri en allir. En Simon er hvers manns hugljúfi hérna og rosalega uppbyggjandi fyrir alla í liðinu, hjálpar öllum."

„Honum líður vel og finnst geggjað gaman að spila í deildinni. Hann er ánægður að fá að spila fótbolta og er búinn að vera ótrúlega flottur fyrir okkur."


Má segja að þið hafið dottið algjörlega í lukkupottinn að ná honum?

„Já, ég held það. Að fá svona leikmann með þennan feril og þessi gæði inn í íslenska fótboltann er náttúrulega frábært fyrir Fram og frábært fyrir íslenskan fótbolta að fá að sjá hann. Hann er búinn að spila frábærlega fyrir okkur, passar boltann ofboðslega vel, er vinnusamur og tengir mikið með Fred inn á miðsvæðinu. Þeir hafa verið að smella saman."

„ Simon er gaur sem gerir alla í kringum sig betri og hjálpar þeim. Hann er ekkert að reyna vera með einhverja flugeldasýningu, gerir hlutina einfalt,"
segir Rúnar.
Athugasemdir
banner