Viðar Jóns: Getum ekki leyft okkur að vera hrokafullir
Auglýsing

Mynd: Jóhanna Kristín Hauksdóttir

Mynd: Jóhanna Kristín Hauksdóttir
Viðar Jónsson þjálfari Leiknis Fáskrúðsfjarðar var að vonum svekktur eftir 2-1 tap sinna mann gegn ÍR í toppslag 2. deildar fyrr í dag. Hans menn klúðruðu vítaspyrnu á lokamínútum leiksins.
„Þetta er náttúrulega drullusvekkjandi að vera 2-1 undir og fá víti í lokin og klikka því: Við lögðum okkur fram í þennan leik en gáfum þeim 2 mörk á silfurfati. Mér fannst við vera heilt yfir sterkari í þessum leik og meira að reyna að spila á meðan þeir voru með langa bolta og láta hraða stráka hlaupa þarna frammi.“
„Við ætluðum að sýna það að við værum með samkeppnishæft lið í þessari deild. Við erum búnir að sanna það fyrir okkur og settum því ný og háleitari markmið og við stefnum að þeim.“
\"Við vissum að við værum ekki að fara taplausir í gegnum þetta mót. Við erum nýliðar í deildinni og getum ekki verið hrokafullir og vaðið yfir allt og alla.“