Það stefnir allt í að Sven Botman verði þriðji leikmaðurinn sem Newcastle fær í sínar raðir í sumar.
Botman er 22 ára varnarmaður sem er á leið til Newcastle frá Lille í Frakklandi.
Botman er 22 ára varnarmaður sem er á leið til Newcastle frá Lille í Frakklandi.
Á föstudag náðu félögin saman um kaupverð á hollenska miðverðinum en það er talið nema um 35 milljónum punda.
Botman er að ferðast til Newcastle í dag og fer í læknniskoðun samkvæmt heimildum Sky Sports.
Fyrr í sumar höfðu þeir Nick Pope og Matt Targett gengið í raðir Newcastle.
Athugasemdir