Guðni Þór: Þessi leikur var alltaf að fara að ráðast á litlum atriðum


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Toppslagur af bestu gerð var að klárast í Kórnum rétt í þessu þar sem HK töpuðu 3-1 í Kórnum gegn toppliði deildarinnar, Víkingi Reykjavík. Guðni Þór, þjálfari HK, var svekktur að leikslokum.
„Mér líður bara mjög illa. Það er aldrei gaman að tapa leik og sérstaklega þegar það er búið að leggja svona mikið í slíka umgjörð. 650 áhorfendur og ég er gífurlega stoltur af félaginu og frábær umgjörð í kringum leikinn. Við gáfum allt sem við áttum í leikinn og því miður var það bara tap í dag. “
650 manns áhorfendur í kvöld
Það mættu 650 manns á leikinn í kvöld sem verður að telja mjög jákvætt en það var geggjuð stemning í Kórnum á meðan leik stóð og í kringum leikinn. Guðni var spurður út í það hvort stemningin hafi gefið þeim auka kraft.
„Heldur betur, þetta gaf okkur mikinn kraft. Þetta eru tvö lið sem vilja taka toppsætið og leikurinn var bara mjög góður. Þessi leikur var alltaf að fara að ráðast á litlum atriðum. Það voru bara lítil atvik hér og þar sem við vorum bara undir í þessum leik. Því miður þurfum við bara að bíta í það súra að hafa tapað í dag.“
HK komu inn í seinni hálfleikinn af fullum krafti og tóku yfir leikinn og náðu svo að jafna. Guðni var sáttur með það en ósáttur að það dugði ekki til sigurs.
„Við töluðum um það í hálfleik að við ætluðum að koma inn með meiri kraft í þetta en það vantaði bara ötlítin meiri kraft og að setja örlitla meiri pressu á varnarmenn þeirra hérna. Við fengum gott mark og fengum þar áður dauðafæri þar sem hún ver ótrúlega í þrígang. Þetta eru svona lítil atvik sem fara með leikinn í dag og Víkingar því miður bara tóku þennan leik.“
Katrín breytti leiknum
Það tók ekki nema tæpar fimm sekúndur fyrir Katrínu að skapa færi fyrir HK í kvöld þegar hún kom inn á en hún jafnaði einnig leikinn fyrir HK og innkoma hennar heillaði Guðna mjög svo.
„Ég er gífurlega ánægður með hana. Það er ekki að ástæðulausu að hún skoraði 20 mörk í tæpum 10 leikjum í 2. flokki í A deildinni í fyrra. Hún býr yfir miklum hraða og mikilli áræðni, hún er mikill markaskorari og það kom inn mikill kraftur með hennar innkomu. Frábær innkoma hjá henni og ég er mjög ánægður með hana.“
Sara Mjöll, aðalmarkvörður HK, fékk að líta rauða spjaldið gegn Gróttu fyrir leikinn í kvöld og var því í banni í kvöld. Sigríður Króknes kom því inn í staðinn en hún er fædd árið 2006. Guðni var líka mjög ánægður með hana í kvöld.
„Mér fannst hún frábær í kvöld. Hún fær hér fyrsta meistaraflokksleikinn sinn gegn Víkingum fyrir framan 650 manns sem er geggjað. Það eru náttúrulega bara stáltaugar í henni og hún gerði bara rosalega vel og ég er mjög ánægður með hennar leik. Hún getur verið stolt af sjálfum sér og við erum stolt af henni líka. Hún er frábær markmaður.“ sagði Guðni að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.






