Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. júlí 2020 20:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Adam Lallana í Brighton (Staðfest)
Lallana hefur leikið með Liverpool frá 2014.
Lallana hefur leikið með Liverpool frá 2014.
Mynd: Getty Images
Adam Lallana er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Brighton. Það var staðfest í kvöld.

Samningur hins 32 ára gamla Lallana hjá Englandsmeisturum Liverpool rann út á dögunum og var honum frjálst að leita sér að nýju félagi. Hann valdi Brighton.

Lallana hefur leikið með Liverpool frá árinu 2014.

„Adam er mjög spennandi leikmaður fyrir okkur, hann er einhver sem ég er viss um að stuðngsmennirnir eru spenntir að sjá," sagði Graham Potter, stjóri Brighton, um nýja leikmanninn sinn.

Ensku úrvalsdeildinni lauk í gær. Brighton hafnaði í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner