Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 27. júlí 2021 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alex Freyr í Kórdrengi? - „Einhverjar raddir í gangi"
Lengjudeildin
Alex Freyr Hilmarsson.
Alex Freyr Hilmarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Freyr Hilmarsson er sagður á förum frá KR og í Lengjudeildina. Hann hefur verið orðaður við bæði Grindavík og Kórdrengi.

Fótbolta.net barst upplýsingar í gær um að hann væri á leið í Kórdrengi, sem sitja í þriðja sæti Lengjudeildarinnar. Eftir sigur KR á Fylki var Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, spurður út í þessar sögur.

„Ég get ekki staðfest það strax en það eru einhverjar raddir í gangi, já," sagði Rúnar.

Alex Freyr er 27 ára gamall miðjumaður sem hefur leikið með KR frá 2019. Þar áður lék hann með Víkingum við góðan orðstír frá 2016 til 2018, og með Grindavík og Sindra.

Meiðsli hafa sett mikið strik í reikninginn hjá Alex undanfarin ár. Hann hefur komið við sögu í níu leikjum í sumar en ekki verið í stóru hlutverki. Hann fékk fimm mínútur gegn Fylki í gær.
Rúnar Kristins: Gerðu það í 90 mínútur, ekki bara 45
Athugasemdir
banner
banner