Það eru tíðindi þegar kemur að leikmannaslúðri tengdu Chelsea í dag. Sky Sports greinir frá því að félagið sé að skoða tilboð frá öðrum félögum í Tammy Abraham.
Arsenal og West Ham eru sögð hafa áhuga, Arsenal er sagt vilja fá Abraham á láni út tímabilið með möguleika á kaupum næsta sumar. Chelsea er sagt vilja fá ríflega 40 milljónir punda fyrir þennan 23 ára Englending.

Þá er einnig greint frá því að Chelsea sé í viðræðum við Sevilla um kaup á varnarmanninum Jules Kounde.
Franski landsliðsmaðurinn getur spilað sem miðvörðuyr og hægri bakvörður. Hann er 22 ára og á þrjú ár eftir af samningi sínum við Sevilla.
Athugasemdir