Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. júlí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Augnablik fær þrjá frá Breiðabliki (Staðfest)
Mynd: Augnablik
Augnablik fékk þrjá leikmenn á lokadegi gluggans en allir koma frá Breiðabliki.

Guðni Rafn Róbertsson, Tómas Bjarki Jónsson og Tómas Orri Róbertsson munu allir spila með Augnabliki út þetta tímabil hið minnsta.

Allir koma þeir úr unglingastarfi Breiðabliks en Tómas Bjarki og Tómas Orri spiluðu með Blikum á undirbúningstímabilinu á síðasta ári.

Guðni og Tómas Bjarki eru báðir fæddir 2003 en Tómas Orri er árinu yngri.

Þeir verða klárir í slaginn er Augnablik mætir Víði í 3. deildinni í kvöld en Augnablik er í 6. sæti með 19 stig á meðan Víðir eru í öðru sæti með 25 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner