Fotbolti.net
27.07.22 - 16:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Eriksen skoraði í fyrsta leik með Man Utd - Martínez spilaði líka

Eriksen skoraði.

Eriksen skoraði.

Canon

Mynd: Man Utd

Manchester United spilaði í dag æfingaleik við Wrexham á bak við luktar dyr.
Leikmenn sem hafa ekki verið að spila mjög mikið á undirbúningstímabilinu til þessa fengu tækifæri til að láta ljós sitt skína í þessum leik hjá United.

Christian Eriksen og Lisandro Martínez, nýjustu leikmenn félagsins, spiluðu báðir sinn fyrsta leik fyrir United.

Eriksen gerði sér lítið fyrir og skoraði mark beint úr aukaspyrnu, en leikurinn endaði 4-1 fyrir Man Utd.

Amad Diallo, Alejandro Garnacho og Alex Telles voru einnig á skotskónum fyrir United í þessum leik.

Næsti leikur Man Utd á undirbúningstímabilinu er gegn Atletico Madrid á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.