Viktor Karl: Þurftum að taka þá alvarlega og vinna vel fyrir þessum þremur punktum

Viktor Karl Einarsson fyrirliði Breiðabliks í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Karl Einarsson fyrirliði Breiðabliks í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik vann öflugan sigur á Eyjamönnum í kvöld þegar lokaleikir 16. umferðar fóru fram.
Eftir markalausan fyrri hálfleik náði Breiðablik inn sigurmarki í þeim seinni og fóru með eins marks sigur á Eikarvellinum í kvöld.
„Mjög sterkur sigur" sagði Viktor Karl Einarsson fyrirliði Breiðabliks í leiknum eftir sigurinn í kvöld.
„Þeir eru búnir að vera á góðu skriði og við þurftum að taka þá alvarlega í dag og vinna vel fyrir þessum þremur punktum"
„Ég er virkilega sáttur, við byrjuðum svolítið brösulega og áttum erfitt með að telja þá en svo bara náðum við að lagfæra aðeins pressuna okkar og mér fannst það ganga miklu betur"
„Í seinni hálfleik fannst mér við byrja mjög vel og náum inn góðu marki og svo kannski eftir markið þá gáfum við þeim kannski aðeins of mikinn tíma á boltann en bara heilt yfir mjög góður leikur og bara sterkur sigur"
Breiðablik vann góðan sigur og hélt hreinu að auki í kvöld.
„Við töluðum svolítið um það fyrir leik að reyna tengja saman góða varnar-og sóknarframmistöðu. Auðvitað getum við verið beittari fram á við í leiknum í dag en mér fannst við gera vel varnarlega og gáfum lítið af færum á okkur. Erum harðir í varnarleiknum og skorum gott mark, hefðum svo sem getað sett fleiri en bara heilt yfir mjög góð frammistaða" sagði Viktor Karl Einarsson.
Nánar er rætt við Viktor Karl Einarsson í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 16 | +42 | 43 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 16 | +13 | 34 |
| 4 | Breiðablik | 16 | +9 | 29 |
| 5 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 6 | Keflavík | 16 | -8 | 19 |
| 7 | ÍA | 16 | -8 | 18 |
| 8 | ÍBV | 16 | -8 | 16 |
| 9 | Stjarnan | 16 | -12 | 15 |
| 10 | KA | 15 | -8 | 14 |
| 11 | FH | 16 | -11 | 13 |
| 12 | Þór | 15 | -25 | 11 |
