Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 27. ágúst 2018 09:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Sarri: Aldrei séð Benitez spila með fimm varnarmenn
Sarri skildi ekkert í Benitez í gær.
Sarri skildi ekkert í Benitez í gær.
Mynd: Getty Images
Maurizio Sarrio viðurkenndi að hann hefði verið hissa á taktíkinni hjá Rafael Benitez í viðureign Chelsea og Newcastle í gær.

Sarri og félagar héldu áfram að heilla fótboltaunnendur með spilamennsku sinni í dag en hefði þó auðveldlega getað tapað stigum. Sarri var sáttur með sigurinn en hissa á Benitez.

Leikurinn var mjög erfiður, þeir voru svo þéttir að það var ómögulegt að hafa pláss. Þetta var betra í seinni hálfleik en mjög erfiður leikur. Ég hef aldrei séð Benitez á Ítalíu með fimm varnarmenn, svo að í byrjun kom hann mér mjög á óvart,” sagði Sarri.

Hazard var flottur í leiknum en Sarri hefði viljað skipta honum út af þegar korter var eftir.

Ég held að hann hafi spilað vel. Kannski hefði verið betra að hann spilaði bara 70 eða 75 mínútur en eftir fyrsta markið bað Kovacic um skiptingu,” sagði Sarri.
Athugasemdir
banner
banner