Fotbolti.net
27.08.23 - 17:56
Sölvi Haraldsson

Pétur eftir 4-1 sigur: Mér fannst við ekkert sérstakar í dag

Auglýsing
Pétur eftir 4-1 sigur: Mér fannst við ekkert sérstakar í dag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Mér fannst við ekkert sérstakar í dag. Keflavík spilaði mjög góðan leik í dag og gerðu þetta okkur erfitt. En mörkin hjá okkur voru mjög vel spiluð og ég er bara ánægður með að hafa unnið leikinn.“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir 4-1 sigur á Keflavík.

Leikmenn eins og Ísabella Tryggvadóttir, Fanndís Friðriksdóttir og Þórdís Elva byrjuðu á bekknum en komu inn á og breyttu leiknum. Pétur var mjög sáttur með þeirra innkomu.

Allar skiptingarnar komu vel inn á. Það er mjög gott að eiga svona sterkan hóp.“

Þær jöfnuðu úr vítaspyrnu en Pétur var sammála dómaranum um vítaspyrnudóminn.

Þetta var bara pjúra víti og mjög illa gert hjá okkur. Eins og ég sagði að þá áttu Keflvíkingar mjög góðan leik og spiluðu þennan leik mjög vel.“

Pétur var spurður út í það afhverju Sandra byrjaði í markinu í staðin fyrir Fanney Ingu sem hafði byrjað alla leikina á tímabilinu til þessa fyrir Val.

Hún byrjaði því ég valdi hana. Það er eina ástæðan fyrir því.

Núna er hefðbundið íslandsmót lokið og næst á dagskrá er umspilið. Pétur var spurður út í það hvernig honum hefur litist á þetta tímabil.

Við erum búnar að gera mjög vel út úr þessu og sérstaklega í fyrri hluta móts þar sem við vorum í miklu brasi með veikindi og meiðsli og annað. Hvernig leikmennirnir brugðust við þá var frábært og að vera efst í fyrri umferðinni var æðislegt. Þetta er bara gott eins og það er.

Núna tekur við umspilið þar sem lið í efri helmingnum keppa gegn hvoru öðru og einnig liðin í neðri helmingnum. Pétur var spurður út í það hvernig honum líður fyrir umspilið.

Mér skilst að það sé Þór/KA hjá okkur næst. Það eru bara 5 leikir eftir og það er bara næsti leikur hjá okkur. Við erum ekki búnar gera neitt núna en það er bara Þór/KA 1. september og ég skal spjalla við þig eftir þann leik.“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, að lokum eftir 4-1 sigur á Keflavík.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.