Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. október 2021 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sagði Chambers að hann myndi skora sem hann svo gerði
Rétt yfir línuna!
Rétt yfir línuna!
Mynd: EPA
Callum Chambers skoraði fyrra mark Arsenal gegn Leeds í enska deildabikarnum í gær. Chambers kom inn á og 23 sekúndum seinna skoraði hann með skalla eftir hornspyrnu.

Chambers kom inn á fyrir Ben White sem haltraði af velli. Mikel Arteta sagði í viðtali eftir leik að White hefði fundið fyrir einhverjum veikindum.

Nicolas Jover, sá sem sér um föst leikatriði hjá Arsenal, ræddi við Chambers áður en hann fór inn á. Hann sagði við varamanninn að hann myndi skora með sinni fyrstu snertingu og hann hafði rétt fyrir sér.

Boltinn fór rétt yfir marklínuna og tók smá tíma áður en Andre Marriner, dómari leiksins, sagði að um mark hefði verið að ræða.

Arsenal vann leikinn 2-0 og er komið í 8-liða úrslit keppninnar. Það verður fróðlegt að sjá hvort Chambers komi inn í lið Arsenal fyrir næsta leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner