Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 27. nóvember 2021 13:35
Aksentije Milisic
Myndband: Ótrúlegt klúður Aubameyang gegn Newcastle
Mynd: Getty Images
Þessa stundina eigast við Arsenal og Newcastle United en þegar þetta er skrifað er staðan 0-0 í leikhléi.

Arsenal hefur verið meira með knöttinn og sótt meira en gekk illa að skapa sér færi framan af. Það kom hins vegar undir lok fyrri hálfleiks og átti liðið að skora.

Pierre Emerick-Aubameyang, fyrirliði liðsins, fékk þá algjört dauðafæri til þess að koma Skyttunum í forystu rétt fyrir hálfleik.

Eftir góða sókn átti Emile Smith-Rowe skalla sem Martin Dubravka varði vel út í teiginn. Þar var Aubameyang einhverjum tveimur metrum frá opnu marki en á einhvern ótrúlega hátt skaut hann knettinum í stöngina.

Aubameyang hefur verið iðinn við kolann í leikjum gegn Newcastle en þarna fór hann hins vegar illa að ráði sínu. Þetta dauðafæri má sjá með því að smella hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner