
Samkvæmt opinberum tölum FIFA voru 88.966 áhorfendur á Lusail leikvangnum í Katar þegar Argentína vann 2-0 sigur gegn Mexíkó í gær.
Setið var í hverju sæti og frábær stemning á leikvangnum þar sem úrslitaleikur mótsins mun fara fram.
Setið var í hverju sæti og frábær stemning á leikvangnum þar sem úrslitaleikur mótsins mun fara fram.
Þetta er hæsti áhorfendafjöldi á HM síðan í úrslitaleik HM í Bandaríkjunum 1994. Alls 94.194 áhorfendur voru í Rósaskálinni í Kaliforníu en Brasilía vann þá Ítalíu í vítaspyrnukeppni.
Sjá einnig:
Leikvangur í nærmynd: Úrslitaleikurinn spilaður í gullskál
HM: Glæsileg mörk í fyrsta sigri Argentínu á mótinu https://t.co/h2t0hhVPx6
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) November 26, 2022
Athugasemdir