Fotbolti.net
28.01.23 - 16:30
Ívan Guðjón Baldursson

Bjarki Aðalsteinsson í Grindavík (Staðfest)

Bjarki Aðalsteinsson í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Grindavík

Miðvörðurinn hávaxni Bjarki Aðalsteinsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Grindavík.

Bjarki kemur til félagsins úr röðum Leiknis R. þar sem hann spilaði 24 leiki í fyrra og skoraði tvö mörk er Breiðhyltingar féllu úr Bestu deildinni.

Ljóst er að Bjarki verður mikill liðsstyrkur fyrir Grindvíkinga sem enduðu um miðja Lengjudeild í fyrra með 30 stig.

Grindvíkingar hafa verið að styrkja sig mikið fyrir komandi tímabil og verður áhugavert að fylgjast með gengi þeirra í Lengjudeildinni undir stjórn Helga Sigurðssonar.

Bjarki með bandið.

Bjarki með bandið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.