Bandaríski miðjumaðurinn Weston McKennie er á leiðinni til Leeds United en Max Allegri, þjálfari Juventus, staðfesti að félögin hafa náð samkomulagi.
McKennie fer til Leeds á láni en enska félagið getur síðan keypt hann þegar lánssamningi lýkur.
„Félögin hafa náð samkomulagi. Weston verður ekki í leikmannahópnum á morgun," sagði Allegri en Juventus mætir þá Monza í Serie A.
Leeds mun borga 1,2 milljónir evra fyrir lánssamninginn og eftir hann getur félagið keypt McKennie á 33 milljónir evra. Mckennie sjálfur hefur náð samkomulagi við Leeds.
McKennie er fæddur árið 1998 en hann kom til Juventus á láni frá Schalke árið 2020. Eftir það var hann keyptur til félagsins endanlega.
Hann á að baki 70 leiki og níu mörk hjá Juve og þá hefur hann spilað 41 landsleik fyrir Bandaríkin.
Weston McKennie to Leeds, here we go! Understand Leeds will pay €1.2m loan fee — deal will include buy option clause for €33m plus add ons ?????????????? #LUFC
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) January 28, 2023
Leeds president Radrizzani unlocked the deal with Juventus in the night.
McKennie has agreed personal terms with Leeds. pic.twitter.com/mY1g6Fuql0