Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 28. janúar 2023 16:10
Aksentije Milisic
Pogba og Vlahovic klárir í slaginn
Mynd: EPA

Paul Pogba og Dusan Vlahovic, leikmenn Juventus, eru báðir heilir og klárir í slaginn á ný.


Þeir verða í leikmannahópnum en liðið mætir Monza á morgun í Serie A deildinni.

Paul Pogba gæti þarna spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið í endurkomu sinni en hann gekk til liðs við Juventus síðasta sumar á frjálsri sölu frá Manchester United.

Hann meiddist á undirbúningstímabilinu og hefur verið meiddur síðan þá. Meiðsli hafa verið saga þessara leikmanns undanfarin ár.

Max Allegri staðfesti hins vegar það að hann sé loksins orðinn klár í slaginn og gæti hann fengið mínútur á vellinum á morgun.

Þá er sóknarmaður Dusan Vlahovic einnig tilbúinn en hann hefur verið í miklum vandræðum með nárameiðsli. Hann spilaði meiddur á Heimsmeistaramótinu með Serbíu og hefur ekki náð sér síðan fyrr en nú.

Góðar fréttir fyrir Juventus en liðið er um miðja deild eftir að fimmtán stig voru dregin af félaginu eins og flestir vita.


Athugasemdir
banner
banner
banner