Semenyo kominn til Bournemouth (Staðfest)

Semenyo fór með Gana á HM í Katar.

Mynd: EPA

Semenyo fór með Gana á HM í Katar.

Mynd: EPA
Bournemouth er búið að staðfesta komu Antoine Semenyo til félagsins frá Bristol City.
Semenyo virtist vera á leið til Crystal Palace en Bournemouth tókst að krækja í þennan 23 ára Ganverja sem er fjölhæfur framherji.
Hann hefur skorað sjö mörk og gefið tvær stoðsendingar í 26 leikjum með Bristol á tímabilinu og er fenginn til að auka breiddina í sóknarlínu Bournemouth.
Bournemouth er í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar með 17 stig eftir 20 umferðir.
Semenyo er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Bournemouth í janúar eftir Dango Ouattara og Darren Randolph.




