28.02.20 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
Laporte ekki með gegn Man Utd og Real Madrid

Aymeric Laporte.

Mynd: Getty Images

Aymeric Laporte.

Mynd: Getty Images
Pep Guardiola hefur staðfest að varnarmaðurinn Aymeric Laporte verði frá í þrjár til fjórar vikur vegna meiðsla aftan í læri.
Laporte mun meðal annars missa af leikjum Manchester City gegn Manchester United og Real Madrid.
Laporte er besti varnarmaður Manchester City en hann fór meiddur af velli þegar City vann 2-1 útisigur í fyrri viðureigninni gegn Real Madrid í Meistaradeildinni.

Laporte hefur verið meiddur langstærstan hluta tímabilsins og aðeins komið við sögu í sjö úrvalsdeildarleikjum.
Á fréttamannafundi Guardiola kom fram að Leroy Sane myndi spila varaliðsleik í kvöld, hann er að verða klár eftir erfið meiðsli.