Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 28. mars 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Berbatov segir Jovic eiga skiliđ refsingu
Mynd: Getty Images
Dimitar Berbatov hefur tjáð sig um Luka Jovic málið. Sóknarmaðurinn átti að vera í sóttkví í Belgrad en sást úti á lífinu með kærustu sinni og hefur legið undir þungri gagnrýni síðan.

Jovic hefur verið notaður sem dæmi um mann sem telur reglurnar ekki gilda um sig vegna stöðu sinnar sem fótboltastjarna.

Berbatov telur það hugarfar vera hættulegt og vonar að Jovic verði refsað svo hann læri af mistökum sínum.

„Við Jovic erum báðir frá Balkanskaganum og stundum líkar okkur lífið aðeins of mikið," sagði Berbatov.

„Ég vona að árangurinn hans og félagaskipti til Real Madrid hafi ekki lyft honum of hátt frá jörðinni.

„Það getur verið hættulegt og honum þarf að refsa."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner