Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   lau 28. mars 2026 16:53
Elvar Geir Magnússon
Breytingar á reglum varðandi spjöld og leikbönn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breytingar hafa verið gerðar á reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál en frá þessu er greint á heimasíðu sambandsins.

Þær breytingar sem m.a. hafa verið gerðar eru að viðurlög í agamálum birtast í mótakerfi KSÍ og taka þá og þegar sjálfkrafa gildi. Leikmenn fara semsagt sjálfkrafa í bann eftir spjaldasöfnun en ekki þarf að úrskurða sérstaklega um það á fundi aganefndar.

Einnig hefur sú breyting verið gerð að spjöld fylgja leikmanni ekki á milli keppna.

Spjöld sem leikmaður fær í Meistarakeppni KSÍ fylgir ekki inn í Íslandsmótið og spjöld sem leikmaður fær í Fótbolta.net bikarnum fylgir ekki yfir í Mjólkurbikarinn.
Slapp
banner