Fotbolti.net
28.04.23 - 09:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vanderson til Man Utd á meðan City horfir til Arsenal

Jude Bellingham

Jude Bellingham

Canon

Mynd: Getty Images

Powerade
Hér er það helsta í föstudagsslúðrinu. BBC tekur saman það helsta og er pakkinn í boði Powerade.


Ráðamenn hjá Real Madrid munu ferðast til Þýskalands í vikunni til að reyna sannfæra Borussia Dortmund og Jude Bellingham (19) um að ganga í raðir félagsins í sumar. (Marca)

Declan Rice (24) miðjumaður West Ham og enska landsliðsins er efstur á óskalista Arsenal. (Telegraph)

Casemiro (31) miðjumaður Manchester United er skotmark Thomas Tuchel hjá Bayern Munchen. (Kicker)

Tuchel hefur einnig áhuga á að vinna aftur með Mateo Kovacic (28) sem er hjá Chelsea. (Sport1)

Bayern hefur engan áhuga á að selja Ryan Gravenberch (20) í sumar þrátt fyrir áhuga Liverpool, Manchester United og Arsenal. (CaughtOffside)

Julian Nagelsmann, fyrrum stjóri Bayern, er efstur á fjögurra manna óskalista Tottenham sem er í stjóraleit. Nagelsmann gæti verið of dýr fyrir Tottenham. (Telegraph)

Ralf Rangnick, fyrrum bráðabirgðastjóri Man Utd, hefur hvatt Nagelsmann til að taka við Tottenham. (Guardian)

Man City er að skoða hvort hægt sé að fá Kiean Tierney (25) hjá Arsenal. Aston Villa og Newcastle hafa einnig áhuga á skoska vintri bakverðinum. (Football Insider)

Aston Villa skoðar hvort hægt sé að fá Ivan Toney (27) frá Brentford. (Football Insider)

Joao Felix (23) mun ekki snúa til baka til Atletico í sumar úr láninu hjá Chelsea. Hann mun framlengja lánssamninginn. (Sun)

Brighton er að nálgast samkomulag um að fá Joao Pedro (21) sóknarmann Watford. (Fabrizio Romano)

Roberto de Zerbi, stjóri Brighton, er að plana með stjórn félagsins hvernig hægt sé að taka næsta skref. De Zerbi vill fá að vera með puttana í því hvaða leikmenn eru fengnir inn. (Mail)

Napoli mun ekki nýta sér kaupákvæði í lánssamningi Tanguy Ndombele (26) sem er á láni frá Tottenham. (Nicolo Schira)

Manchester United er að undirbúa tilboð í Vanderson (21) hægri bakvörð Mónakó. Fleiri félög í úrvalsdeildinni hafa einnig áhuga. (RMC Sport)

AC Milan er að fylgjast með stöðu mála hjá Reiss Nelson (23) hjá Arsenal. Nelson á enn eftir að skrifa undir nýjan samning. (Calciomercato)

AC Milan hefur einnig áhuga á Ruben Loftus-Cheek (27) hjá Chelsea. (90min)

Brentford, Fulham og Brighton hafa öll skoðað Joseph Paintsil (25) sem skorað hefur fjórtán mörk fyrir Genk í Belgíu í vetur. (Telegraph)

Katararnir, sem Sheikh Jassim Bin Hamad Al Thani leiðir, munu leggja fram sitt þriðja og síðasta tilboð í Manchester United. (Telegraph)

Arsenal hefur rætt um hvort Mason Mount (24) gæti verið rétti leikmaðurinn fyrir liðið. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Chelsea og Liverpool hefur einnig áhuga. (Telegraph)

Lois Openda (23) framherji hjá Lens er einnig skotmark Arsenal. Hann hefur skorað sautján mörk á tímabilinu. (Daily Mail)
Fer Rice frá sápukúlunum?

Fer Rice frá sápukúlunum?

Canon

Mynd: EPA

Tierney á förum?

Tierney á förum?

Canon

Mynd: EPA

Vanderson

Vanderson

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.