Víkingur Ólafsvík er búinn að staðfesta komu miðjumannsins Vitor Vieira Thomas til félagsins.
Vitor Vieira er fæddur 1999 og á 41 keppnisleik að baki fyrir KF í deild og bikar. Hann er fæddur í Brasilíu og uppalinn á Ólafsfirði.
Vitor hefur æft með Víkingi undanfarnar vikur og spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Snæfelli í vikunni. Hann skoraði aðeins mínútu eftir innkomu sína á völlinn í 11-0 sigri.
„Víkingur Ó. væntir mikils af Vitori í sumar og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til félagsins," segir í Facebook færslu frá Víkingi Ó.
Athugasemdir